Þó veðrið sé fallegt þessa stundina þá er kuldi í loftinu og þá er fátt betra en að sveipa um sig glæsilegu heimaprjónuðu sjali.
(Og það er skrítið að þó ég eigi fullt af klútum, treflum og sjölum þá fyllist ég alltaf þörf fyrir nýtt sjal á haustin. Kannski í nýjum lit eða úr öðruvísi garni eða þá að ég þarft endilega að prófa nýtt mynstur.)
Og þá er tilvalið að taka upp prjónana, velja garn og koma sér vel fyrir í sófanum.
Og ekki er verra ef uppskriftin er einföld - svona 'horft á sjónvarp uppskrift'.
Enn leita ég í smiðju handavinnusnillinganna í kringum mig, með uppskrift að einföldu sjali.
Til minnis
Textíl-garn SuperSoft: 1 dokka í hverjum þessara lita Ecru, Svart og Crocus, samtals 130-140 gr.
Hringprjónar nr. 4.5
Fitjið upp 401 lykkju úr einföldu garni og prjónið eina umferð.
Gott er að setja prjónamerki sitthvoru megin við miðjulykkjuna - til að merkja úrtöku betur. Þá eru prjónaðar 200 lykkjur, setjið prjónamerki, 1 lykkja, setjið prjónamerki, og svo er prjónað út prjóninn.
Í næstu umferð er tekið úr fjórum sinnum.
Prjónaðar eru tvær lykkjur (jaðarlykkjur) í byrjun prjóns og svo er tekið úr með því að prjóna saman næstu tvær lykkjur.
Takið saman tvær lykkjur hvoru megin við miðjulykkjuna
og svo er úrtaka í lok prjóns, þegar fjórar lykkjur eru eftir þá eru prjónaðar tvær lykkjur saman og svo eru jaðarlykkjurnar tvær prjónaðar.
Prjónið rendur, eins og ykkur lystir. Ýmist breiðar eða mjóar.
Til að ranga verði eins og rétta og gera litaskipti fallegri er hægt að prjóna gatamunstur út prjóninn þannig: prjóna tvær lykkjur saman og slá upp á prjóninn, gert eins út allan prjóninn.
Þetta má sjá á sjalinu hér fyrir neðan.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli